Auglýsing

Long time......

07. júní 2009 klukkan 22:39
Jæja það er annsi langt síðan að ég skrifaði staf á þetta blogg, tímabært að sinna þessu. Nú á ég einungis tvær annir eftir í að útskrifast sem þroskaþjálfi og mikið mikið hlakka ég til. Dabban mín kláraði fyrsta árið sitt í framhaldsskóla og stóð sig með eindæmum vel, var yfir meðaltali í öllum fögum. Svo er hún búin að skrá sig á félagsfræðibraut á næstu önn.

Það er allt annars svona við það sama hjá mér. Ástarlífið á uppleið, segi ekki meir, ennþá svo nýtt og vona bara að þetta gangi en sé ekki bara "of gott til að vera satt" Wink. Sumarfrí á morgun og fer svo á afleysingar morgunvaktir frá 13. júlí og fram í miðjan ágúst, fínt að hvíla sig aðeins á næturvöktunum.

Ætla að reyna að vera duglegri að blogga.
Þangað til Kiss

Stór dagur

31. janúar 2009 klukkan 17:30

Í dag er stór dagur í minnin fjölskyldu. Mamma og pabbi eiga 50 ára brúðkaupsafmæli og Baldur hans Geira bró giftir sig dag. Algjör tilviljun að þessi dagur varð fyrir valinu. Þannig að 31. janúar fer á kortið hjá mér. Laughing

Mótmæli og 31 janúar.

21. janúar 2009 klukkan 13:28

Það kemur manni ekki á óvart hvernig mótmælin hafa færst á verri veg. Búið er að fullreyna friðsöm mótmæli, ráðamenn eru ekki að hlusta. Nú er fólk orðið langþreytt á að tala ofan í tómar tunnurnar. Þó ég sé ekki meðfallinn ofbeldisfullum og skemmandi mótmælum þá skil ég samt að það sé komið í þennan gír. Það virðist alltaf þurfa eitthvað róttækt til að hlustað sé. Bara svona eins og með sumar umferðargöturnar hér á landi, það er ekkert lagað fyrr en banaslys hefur orðið, sorgleg staðreynd. Yell

Annars átti pabbi afmæli þennan fræga dag óeirða á Íslandi og embættisinnsetningu Obama í USA, hann varð nú samt ekkert mikið var við þetta enda á Spáni með kellunni sinni. Þann 31. janúar eiga þau skötuhjú (mamma og pabbi) 50 ára brúðkaupsafmæli og sama dag algjörlega ómeðvitað ætlar elsta barnabarn þeirra og alnafni kallsins (Baldur hans Geira bró) að giftast sinni heitelskuðu Meg. Ótrúleg tilviljun hjá þeim að velja akkúrat þennan dag. Laughing

Er að hugsa um að skella mér í próf á morgun þó ég geri nú ráð fyrir því að þurfa að taka það aftur í júní, sjáum hvað verður. En miðað við hvað lítið situr eftir í þessum lestri mínum, þá verður þetta eitthvað skrautlegt hjá mér.Tongue out

Sjáumst von bráðar Kiss

Eina færslu áður en...........

13. janúar 2009 klukkan 08:33

..............febrúar rennur í hlað. Dabba fór í Idolið og var eins og öðrum 16-18 ára unglingum hafnað. Nú snýst þetta bara um áhorf og nýja áskrifendur, eins og hún sagði sjálf "mér gæti ekki verið meira sama þó ég hafi ekki komist áfram, þetta er svo mikið feik,,.  Svo fór hún í Borgarleikhúsið þar sem hún var ein af 4000 manns sem komst áfram í 400 manna úrtak. Þar gekk henni mjög vel og fær að vita einhverntíman í þessari viku hvort hún kemst áfram í 80 manna úrtakið.

Skólinn er byrjaðu hjá okkur mæðgum. Framundan er vettfangsnám hjá mér og sjúkrapróf núna einhverntíman 19-23 jan, sem ég hef bæþe vei ekki verið dugleg að læra fyrir. Svo ef ég fell þá get ég ekki skrifað það á neinn nema sjálfa mig.

Læt þetta duga í bili þar sem ég er að fara í skólann núna klukkan 12:50 og þarf að sofa þangað til (var að koma af nætuvakt).

Nú vantar einungis 6 upp á að komast í 6000 skoðanir og sá sem fær töluna góðu má gjarnan kvitta í gestabókina ;).

Lofa að láta heyra í mér fljótlega.

.........2009

01. janúar 2009 klukkan 05:31



Gleðilegt nýtt ár
.....2009

2008....................

31. desember 2008 klukkan 11:29



2008.......



Uppgjör 2008

31. desember 2008 klukkan 02:24
Jæja nú er þetta viðburðarríka ár senn á enda og nýtt tekur við. Nýtt ár með nýjum tækifærum og hófsemi á öllum sviðum ;)

Árið einkenndist af bæði gleði, mikilli sorg og erfiðleikum hjá minni fjölskyldu. Hér á eftir mun ég fara í gegnum það helsta.

Jan: Tacha vinkona útskrifaðist sem viðskiptafræðingur í vörustjórnun og hélt upp á það að sjálfsögðu með stæl. Voða gaman að fá að taka þátt í svona merkum áfanga. 4. misseri hófst hjá mér í skólanum og gekk mér að venju alveg glimmrandi vel.

Feb: Ásta Hrönn og Kristján (Lísi bróðir) giftu sig og ég fékk að sjálfsögðu að taka þátt.

Apríl: Kristrún mín (dóttir Geira bró og Mæju mágkonu) fermdist og ég varð fullra 35 ára.....úff.

Maí: Fór með Lísibet minni í hrikalega skemmtilega afslöppunarferð til Spánar. Það var alveg svaka gaman hjá okkur, mikið lesið, drukkið og legið í sólbaði. Að ógleymdri tattoo ferðinni okkar. Mitt fyrsta tattoo :)

Júlí: Veröndin mín varð loksins að veruleika eftir áfallið í óveðrinu í fyrra. Með góðri hjálp diggra manna (Leo, pabbi, Krissi, Geiri, Jörgen, Dísa og mamma). Nú get ég nýtt sumarið 2009 á veröndinni.

Ágúst: Lögðum land undir fót og fórum í ævintýraferð til Egilsstaða að heimsækja Svönu vinkonu og fjölskyldu. Með í ferð voru Dabban mín, Kristrún og Sesar. Gistum eina nótt á Akureyri þar sem bíllinn sem við lögðum upp í ferðina á tók upp á því að enda sína lífdaga fyrir utan Sjallan. Íbúð afa hennar Örnu vinkonu bjargaði okkur alveg þar. Mammslan mín og Dísa sys komu svo færandi hendi með "nýjan" bíl svo við gætum haldið ferðinni áfram. Skemmtum okkur konunglega í góðu yfirlæti í Ullartanganum í vikutíma.Fór í brúðkaup nr. 2 á árinu. Sænsk/íslenskt meira að segja. Guðrún María vinkona mín kom til landsins til að hnýta hnútana við sinn sænska ektamann. Að lokum hófst 5. misseri sem gekk einnig vonum framar. Þá eru einungis 3 annir eftir af skólanum hjá mér. Þetta er allt að koma.

Sept: Eftir hetjulega baráttu við krabbamein lést Mæja "mágkona" þann 15. september. Við tók önnur barátta við einstaklinga alls ótengda og óþekkta fjölskyldunni í því skyni að bróðir minn gæti haldið dætrum sínum. Merkilegt hvað fólk getur verið grimmt og sjálfhverft þó það hafi engra hagsmuna að gæta. Skrítið að önnur þessara manneskja skyldi ekki láta sér nægja að hafa af fullt af fólki ævisparnar og æru sína í bankahruninu (fyrrum fjármálastjóri Kaupþings)....nei hún hélt áfram eins og stormsveipur eyðileggingar og reyndi allt sem hún gat til að rústa fjölskyldu sem hún þekkir nákvæmlega ekkert og er ekkert skyld undir einhverju "æskuvinkonuyfirskyni". Ég þakka bara Guði fyrir að eiga ekki slíkar vinkonur. Þau feðgin eru nú sameinuð á ný og allt gengur svooo vel og hann að standa sig alveg glimmrandi vel. 

Okt: Dabban mín....stjarna mín varð 16 ára. Hún er búin að brillera allt árið, stóð sig rosalega vel í skólanum, komst áfram í áheyrnaprufum hjá Borgarleikhúsinu (söngvaseið) og ætlar að spreyta sig í áheyrnaprufu í Idolinu. Er alveg rífandi stolt af henni og endalaust heppin með hana.

Desember: Eignaðist Arna mín (skugginn minn) og Jói sinn þriðja strák sem síðar var skírður Hreiðar Örn. Ógó mikil dúlla. Maður þarf alveg að slástu við mömmuna um að fá að halda á honum hehe ;)

Þakkir: fá svo allir í kringum mig og sérstaklega Leo, Beta, Lísibet, Tacha, Krissi, Georg, pabbi, mamma, Dísa, Geiri, Jörgen frændi, Gunna Hermansen, Kristján og Ásta, Kristín fagra, Arna mín og Jói, taxi driverinn minn hún Hrefna, Valborg Snævarr lögfræðingur og allir hinir sem þekkja mig og ég hef ekki nefnt. Elskulegu bestu frænkur mínar Sylvía og Kristrún (dætur Geira bró) fá sérstakt hrós fyrir að hafa verið svona duglegar í öllum þeim erfiðleikum sem dundu yfir þær, þið standið ykkur alveg eins og sannar hetjur. 

Enginn þorði að taka þátt í könnun um bankana hehe svo ég læt hana liggja á milli hluta, en það er komin ný könnun og endilega takið nú þátt.

Sjáumst hress á nýju ári......Risa koss og knús á ykkur öll.

Áramótakveðja, Solla.

Jólakveðja

23. desember 2008 klukkan 17:08
Gleðilega hátíð og hafið það sem allra best, borða yfir sig, spila og dást af gjöfum. Jólakoss og knús á ykkur kæru vinir.

Nú verður haldin ræða.....

18. nóvember 2008 klukkan 16:34

Jæja nú verðu haldinn ræða, tengist kannski því eitthvað að ég er veik, með hita og kvef og úber slöpp. Allavega er búin að vera eins og svo margir aðrir að fylgjast með fréttum. Þessa var ég t.d. að lesa;

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/11/18/borgin_aetlar_ad_taka_lan_upp_a_5_8_milljarda/

Borgin ætlar að taka lán upp á 5,8 milljarða

Borgarstjórn Reykjavíkur hefur að tillögu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarstjóra, samþykkt lánsheimild fyrir Reykjavíkurborg að fjárhæð 5,8 milljarða króna til allt að 25 ára með skuldabréfaútboði. Tillagan var samþykkt á borgarstjórnarfundi nú fyrir stundu.

Lánið á nota til fjármögnunar framkvæmda hjá Reykjavíkurborg á árinu 2009 og er í samræmi við þær áherslur sem lagðar voru í aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar vegna breytinga í efnahagsumhverfinu og samþykkt var einróma í borgarstjórn Reykjavíkur þann 7. október sl.

Mér þykir ekki skrítið að borgin þurfi að taka þetta lán í ljósi þess að stór hluti peninga borgarinnar fer í að greiða laun fyrir endalausan fjölda borgarstjóra!

Og svo þessi;

http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2008/11/14/odyr_lausn_fyrir_leigjendur/

Ódýr lausn fyrir leigjendur

Reuters-fréttastofan greinir frá því að svokölluðum fasteignaverndurum eða fasteignaumsjónarmönnum fari fjölgandi (e. property guardian). Einn þeirra, Lucy Pook, býr t.a.m. í yfirgefinni slökkvistöð á besta stað í London fyrir aðeins 50 pund (10.000 kr.) á viku.

Fólki gefst nú kostur á að leigja í yfirgefnu húsnæði á borð við skólabyggingar, slökkvistöðvar og vöruhús og greiða lága leigu. Fasteignafélagið Camelot Property Management á t.d. þúsundir eigna sem standa tómar í Bretlandi, Frakklandi, Belgíu og í Hollandi. Fram kemur að húsráðendur vilji helst að einhver búi í húsunum til að koma í veg fyrir að hústökufólk setjist þar að.

Þá er þetta einnig ódýrari lausn heldur en að kaupa þjónustu af öryggisfyrirtæki.

Leigjendurnir greiða venjulega á bilinu 50 til 60 pund á viku. Í staðinn þurfa leigjendurnir að hafa auga með húsnæðinu og láta vita af því ef það þarf t.d. að láta laga eitthvað.


Held að eigendur húsa við t.d. Hverfisgötu ættu að taka sér þetta til fyrirmyndar. 

Svo svona í lokin, verð ég að segja það að mér gremst það að þurfa að borgar fyrir ófarir annara, ég var ekki með viðskipti við einn af þessum bönkun sem fóru á hausinn, ég tók ekki þátt í þessu góðæri hvorki í formi veraldlegra gæða né sparnaðar enda rétt náðu endar saman og núna í ljósi hækkana duga launin mín fyrir hálfum mánuðinum og ég sit í súpu sem ég tók ekki þátt í að elda. Þetta er ógeðslegar súrt og ósanngjarnt.

Óskast keypt

06. nóvember 2008 klukkan 10:18

Eftirfarandi auglýsing birtist í Fréttablaðinu í dag 6. nóvember 2008. Það fylgdi með símanúmer en ég gef það ekki upp hér.


Óskast keypt

Óska eftir niðurfellingu skulda. Er að
leita eftir bankastarfsmanni sem er fær
í tæknilegum mistökum og getur fellt
niður óhagstæðar og íþyngjandi skuldir.
Finnst óþægilegt að taka ábyrgð á eigin
skuldum og vill losna við þær. Í boði er
hæfilegt magn af íslenskum krónum,
SodaStream tæki, innrömmuð hlut-
hafaskírteini í FL-Group og Kaupþingi.
S: xxxxxxx


Þessi auglýsing fer á ísskápinn minn Tongue out

Leit